Valsari tekur ekki upp á því að skora fyrir KR þó að hann finni hjá sér löngun til að fá tilbreytingu í miðjum leik
gegn Vestur-
bæingum.
Sá sem hefur samþykkt að hlaupa með Ólympíueldinn bregður ekki af leið. Samúel er viss um að það hefði verið tekið í rassgatið á hlaupara sem hefði tekið á rás með kyndilinn til Tíbet í stað Beijing!
PÓLITÍK Hvernig þætti þér að í miðjum leik gegn KR mundi einn leikmanna VALS tilkynna að hann væri nú eiginlega meiri KR-ingur en Valsari í hjarta sínu. Hann ætlaði því að leika það sem eftir lifði leiksins með Vesturbæing- unum? Út í hött, segir þú! En hvers vegna ættum við þá að lýða kjörnum fulltrúum okkar á Alþingi að leika þann leik?
Stjórnmálaflokkarnir, sem bjóða fram til Alþingis eða sveitastjórna, koma saman listum í prófkjöri, forvali eða með uppstillingu. Framboðslistarnir eru síðan kynntir ásamt stefnumálum flokkanna. Þegar þú stendur í kjörklefanum telur þú þig því vita fyrir hvað hver flokkur stendur og greiðir þeim flokki atkvæði þitt sem er þér að skapi.
SÝNA ÞÉR FINGURINN
En hvað gerist svo? Flokkurinn sem þau kaust kemst í meirihluta og fer að vinna að þeim framfaramálum sem hann hafði heitið að hrinda í framkvæmd ef hann fengi atkvæði þitt. Gott mál.
En þá allt einu kemur babb í bátinn. Einn þeirra, sem hafði stillt sér upp undir merkjum og markmiðum þíns flokks og þú greiddir atkvæði í góðri trú, gefur allt í einu skít í öll loforð. Segist hugnast betur að spila með hinu liðinu og sýnir þér fingurinn.
TIL ÞESSA HAFA VALDARÁN VÍÐAST VERIÐ TALIN VOND
Í sveitastjórnum er meirihluti oft myndaður með aðeins eins manns meirihluta og jafnvel á þingi líka. Sá sem svíkur lit eftir kosningar er því í rauninni að fremja valdarán þegar þannig stendur á. Stelast burt með umboð sem hann átti ekki persónulega.
Merkilegt að aldrei skuli hafa verið gerð minnsta tilraun til að taka á þessum ómerkilegheitum. Á meðan persónukosningum hefur (blessunarlega) ekki verið hrundið í framkvæmd, og þú ert að kjósa flokk samkvæmt stefnuskrá hans, átt þú ekki að þurfa að sætta þig við slík vörusvik. Skemmt epli í eplapokanum.
SKAUTAÐ Á MILLI TVEGGJA EÐA ÞRIGGJA FLOKKA
Vissulega er hamrað á því að stjórnmálamenn eigi að fylgja sannfæringu sinni. En það hefur áreiðanlega ekki verið hugsað þannig að hann eigi að geta skautað á milli tveggja eða þriggja flokka á kjörtímabilinu.
Ef hann telur að þannig sé komið að hann geti ekki lengur fylgt flokkssystkinum sínum að málum á hann einfaldlega að víkja fyrir næsta manni á lista. Nóg er af varamönnunum ef þú treystir þér ekki til að leika lengur með liðunu. Flokkur sem hefur náð ellefu mönnum á þing á að eiga ellefu menn á þingi út kjörtímabilið.
Þegar búið er að stilla upp í knattspyrnulið á engum leikmanni að líðast að skipta um lið í miðjum leik. Að afstöðnum kosningum er fjöldi liðsmanna liðanna á hreinu. Á þingi og í sveitastjórnum situr fólk sem þangað er komið í umboði kjósenda sem treysta því að þeir það verði ekki snuðaðir.
TEKIÐ Á RÁS MEÐ KYNDILINN
Samúel er viss um að slík ómerkilegheit líðist ekki í t.d. Eurovison eða Miss World. Jafnvel þó engum hafi dottið í hug að setja inn stafkrók um það í reglurnar. Ef Færeyingurinn Jogvan hefði unnið forkeppnina hér á landi mundi verða píft á hann úti í Moskvu ef hann tilkynnti rétt áður en hann hæfi söng, að hann hafi ákveðið að keppa fyrir Færeyjar.
Nú, eða ef nýkjörin Fegurðardrottning Íslands mundi tilkynna, þegar hún væri komin á pall í alþjóðlegri keppni, að hún hefði ákveðið að keppa í nafni Póllands, pólskum foreldrum sínum til heiðurs. Í sjálfu sér ættu samt slík umboðssvik að koma mönnum minna á óvart en þegar kosið er á löggjafarþing okkar Íslendinga.
SÁ HEFÐI FENGIÐ FYRIR FERÐINA
Sá sem hefur samþykkt að hlaupa með Ólympíueldinn bregður ekki af leið. Samúel er nokkuð viss um að það hefði verið tekið duglega í rassgatið á hlaupara sem hefði tekið á rás með kyndilinn til Tíbet í stað þess að stefna á Beijing!
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.