DÓTTIR NEKTARDANSMEYJARINNAR EFTIRMINNILEG
Sölvi Tryggvason kom fyrst fram á sjónvarpsskjánum fyrir um fjórum árum og varð fljótt einn af vinsælustu fjölmiðlamönnum landsins. Hann stýrir núna tveimur þáttum á Skjá 1, þáttunum Spjallið með Sölva og Málefnið. Þar gengur hann hart fram, en kurteislega, er hann krefur viðmælendur svara. Samúel spjallaði lagði fyrir 30 spurningar fyrir spyrilinn. MEIRA
HUGGY ER LÍKA Í TÓNLISTINN I
Þú hefur séð hana Huggy (Hugrúnu Ragnarsdóttur) í dómarasæti í Britain’s Next Top Model á Skjá einum, en hefur þú heyrt tónsmíðar hennar? Samúel leiðir þig inn á vefsvæði þar sem þú getur hlýtt á sex lög sem hún hefur samið í samvinnu við James Earp. Við höfum líka ánægju af að rifja það upp, að fyrsta módelkeppnin sem Huggy hafði afskipti af úr dómarasæti var Hollywood-keppni Samúels? MEIRA
BJÖGGI HALLDÓRS VIRÐIST EKKI KUNNA Á STIMPILKLUKKU
„Maður stimplar sig inn árið 1967 og út 2000,” sagði Björgvin Halldórsson í viðtali sem Ásgeir Tómasson tók við söngvarann fyrir meira en aldarfjórðungi eða árið 1982. Annað hvort hefur Björgvin gleymt að rífa af dagatalinu eða hann kann ekki á stimpilklukku. Hann sýnir alla vega ekki á sér neitt fararsnið enn sem komið er. Björgvin hefur fengið yfir 30 þúsund manns á sólótónleika í Laugardalshöll á tólf mánaða tímabili. En það var einmitt í Höllinni sem hann var forðum kjörinn Popp- stjarna ársins. Það var árið 1969, sama ár og Samúel hóf göngu sína. MEIRA
SIGFÚSI SIGURÐSSON OG ÞAÐ SEM GLEÐUR HANN EINNA HELST
Samúel bað landsliðsmanninn brosmilda Sigfús Sigurðsson að telja upp tíu atriði sem gleðja hann helst. Það stóð ekki á svari. Samúel datt si svona í hug, að það væri öllum hollt að staldra við af og til og hugleiða, svona til tilbreytingar, hvað sé jákvætt í lífinu og hvort ekki sé í rauninni ærleg ástæð a til að gleðjast yfir þó nokkuð mörgu. MEIRA
KAREN PÁLSDÓTTIR NÆSTA SÚPERSÖNGKONA ÍSLANDS?
SAMÚEL telur sig hafa fundið næstu súpersöngkonu Íslands, sem á eftir að veita Lay Low og Emilíönu Torrini harða samkeppni fyrr en varir. Hún heitir Karen, er aðeins 15 ára gömul og stundar nám við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Sá skóli hefur í áratugi getað státað af einhverjum besta skólakór landsins. En Karen hefur aldrei sungið með kór. Hún syngur sóló. MEIRA
BALDVIN JÓNSSON OG HANS LJÚFASTA ÆSKUMINNING
Vídeó sem sýnir rúmlega sex mínútna langa fréttafrásögn síðan 1965 þar sem gerð er grein fyrir hljómleikum the Kinks í Reykjavík. Baldvin Jónsson, sem þá var enn innan við tvítugt, hafði í einhverri rælni tekið upp á því að semja við bresku hljóm- sveitina um að koma hingað til hljómleikahalds. Þegar svo leið að Íslandsferðinni hálfu ári síðar gerðist það að nýtt lag frá hljómsveitinni skaust upp í fyrsta vinsældalistans í Bretlandi og víðar. Það var lagið You Really Got Me. MEIRA
SIGGI HLÖ NÆRIST Á NOSTALGÍUNNI
Siggi Hlö var fenginn til að stýra útvarpsþætti á laugardagseftirmiðdögum síðasta sumar á Bylgjunni. Hóf störf um vorið og átti að hafa sig í burtu strax um haustið. En honum var snarlega snúið við í útidyrunum þegar í ljós kom að hann hafði fjórfaldað hlustunina á stöðina á þessum útsendingartíma. Hann er því enn að lesa upp úr Samúel í útvarpinu og spila gömul dægurlög. Samúel fékk Sigga til að opna vefsíðu blaðsins með formlegum hætti í beinni útsendingu í nóvember og átti við hann drykk- langt viðtal eftir útsendingu. MEIRA
STEFÁN KARL KÓFSVEITTUR Í GERVI GRÆNA TRÖLLSINS
Frá Baltimore til Boston, þaðan til Los Angeles og því næst á Broadway í New York. Á ellefu trukkum ferðast þessi 700 milljón króna sýning á græna tröllinu sem stal jólunum, á milli stórborga. Sýningunni er gerð afar góð skil í fjölmiðlum, aðallega af tveimur ástæðum; sagan hefur notið áka flega mikilla vinsælda í Bandaríkjunum allt frá því hún kom fyrst fram fyrir hálfri öld og í öðru lagi er Stefán Karl Stefánsson í aðalhlutverki, en hann þekkja bandarísk blörn sem Glanna glæp í Latabæ. MEIR A
BJÖRN THORODDSEN ÚT UM ALLAR TRISSUR MEÐ ÝMSUM HLJÓMSVEITUM
Samúel heimsótti Björn Thoroddsen árið 1981 til að mynda hann með gítarsafn hans sem þá taldi níu gripi. Núna, 27 árum síðar, lék okkur forvitni á að vita hvort ekki hafi fjölgað í safninu. Í ljós kom að það hafði tvöfaldast. Hann segist þó yfirleitt ekki taka með sér nema einn gítar þegar hann er að fara að spila opinberlega. Fyrsti gítarinn hans var heimasmíðaður og í stað strengja notaði hann nærbuxnateyjur. Björn er ótrúlega iðinn, spilar m eð ólíkum hljómsveitum viða um heim og gefur mikið út af tónlist. MEIRA
„RÚNAR JÚLÍUSSON Á SÉR ENGA HLIÐSTÆÐU HÉR Á LANDI″
Þorsteinn Eggertsson skrifaði eftirfarandi um Rúnar Júlíusson fyrir fjórum árum: „Skrautlegur tónlistarferill Rúnars á sér enga hliðstæðu hér á landi og sennilega hvergi í heiminum. Hann á þó ýmislegt sameiginlegt með nokkrum af frægustu goðsagnapersónum rokksögunnar. Eins og Elvis Presley var hann einungis táningur þegar ferillinn hófst en hafði unnið fyrir sér sem bílstjóri fram að því." MEIRA
FRIÐRIK ÞÓR OG ÞAÐ SEM VINIRNIR SEGJA UM HANN
Fljótlega eftir að Friðrik Þór hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna snéri Samúel sér til nokkurra vina kvikmyndaleikstjórans. Voru þeir beðnir um að lýsa Friðriki Þór í fáeinum orðum. Við grípum niður í nokkuð af því sem vinirnir höfðu að segja í viðtölum við blaðamann Samúels, Jóhann Guðna Reynisson. MEIRA
ALFREÐ FLÓKI OG BUXNALAUSA STELPAN KOMU SAMÚEL Í VANDRÆÐI
Alfreð Flóki hélt sýningar í Bogasalnum og fleiri virðulegum sýningarsölum hér og erlendis, en þegar Samúel átti við hann viðtal 1971 og birti með því heilsíðumynd þar sem hann stóð við nýjustu mynd sína ….. tja, þá var myndlistin litin öðrum augum en í Bogasalnum. Sveinn Björnsson, rannsóknarlögreglumaður í Hafnarfirði, sem einnig var þjóðkunnur myndlistarmaður, þótti myndin of djörf og gerði blaðið upptækt í bæjarfélaginu. MEIRA
HELGI Í RÍÓ BER TITILINN HERRA SAMÚEL TIL ÆVILOKA
Árið 1977 stillti Samúel upp átján karlmönnum sem valdir höfðu verið til keppninnar af kostgæfni. Þeir voru ekki spurðir leyfis og kærðu sig allir kollótta - allir nema einn. Þjóðin kaus og Helgi Pétursson í Ríó Tríói hlaut sannfærandi kosningu. Helga var úthlutað titlinum Herra Samúel og plataður niður á Laugardalsvöll í myndatöku í hörku frosti. Honum var afhent stórmyndarleg stytta til eignar, nokkrum myndum var smellt af og athöfninni þar með lokið. Síðan hefur hann setið uppi með titilinn. MEIRA
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.