Enn einu sinni hefur fjö lmiðill neitað að birta auglýsingu frá Peta. Nú hefur sjónvarpsstöðin NBC strækað á að taka við nýjustu auglýsingu dýravernd- unarsamtakanna PETA.
Auglýsinguna átti að birta í auglýsingahléi næstkomandi sunudag meðan á sjónvarps- útsendingu stendur frá úrslitaleiknum í ameríska fótboltanum, Super Bowl, þeirri útsendingu sem fær einna mest áhorf í sjónvarpi.
Auglýsingin frá Peta fór fyrir brjóstið á auglýsingadeild NBC af átta ástæðum, allar lutu þær a ð kynferðislegum tilburðum í auglýsingnni.
Peta hefur hrundið af stað átaki til að fá fólk til þess að vera grænmetisætur í 30 daga og er auglýsingin liður í áróðri fyrir átakið.
„Ástæða þess er til þess að aflétta þján- ingu dýra og minnka slæm áhrif kjötáts á umhverfið. Fyrir hvern sem lofar þessu ætlar Peta að styrkja gróðursetningu ávaxtatrjá fyrir fátæka og vann g;rða,” segja talsmenn Peta, sem hafa lengi gert auglýsingar með ofur- fyrirsætum, sem segjast frekar ganga naktar en klæðast pelsum. Á þeirra vegum voru einmitt stúlkurnar tvær, sem skulfu úr kulda á nærbrókunum einum fata á Lækjartorgi fyrr í vetur.
Peta velur ár hvert kynþokkafyllstu grænmetisæturnar. Sá titill hefur m.a. fallið í skaut Idolstjörnunnar Carrie Underwood sem segist ekki hafa borðað kjöt síðan hún var 13 ára gömul. Kevin Eubanks, hljómsveitastjórnandinn geðþekki úr þætti Jay Leno, er að mati Peta einn kynþokkafyllsti karlmaðurinn í hópi grænmetisæta.
Grænmetisauglýsingin er ekki sú eina Peta-auglýsingin sem hefur verið bönnuð eins og fram kemur á heimasiðu samtakanna:
Loðfeldir eru fyrir dýr , segir í þessari auglýsingu. HÉR
Réttlætir löngun einhvers til að eignast loðfelld virkilega morð? HÉR
Bönnuð Peta auglýsing með leikkonunni Alicia Silverstone. HÉR
TIL AÐ FARA INN Á GRÆNMETISSÍÐU PETA SMELLIR þÚ HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.