Þú hefur séð hana Huggy (Hugrúnu Ragnarsdóttur) í dómarasæti sínu í Britain’s Next Top Model á Skjá einum, en hefur þú heyrt tónsmíðar hennar? Hér neðar á síðunni leiðir Samúel þig inn á vefsvæði þar sem þú getur hlýtt á sex lög sem hún hefur samið í samvinnu við James Earp, 25 ára gamlan Breta, sem hefur náð að verma toppsæti á vinsældalistum.
NÝTUR GRÍÐARLEGRAR ATHYGLI
Breska pressan er mjög upptökin af Huggy og þykir mikið til hennar koma. Síðan hún tók að birtast í breska sjónvarpsþættinum hafa birst við hana ótal viðtöl í breskum blöðum auk þess sem hún er tíður gestur í spjall- þáttum útvarps og sjónvarps.
Þykir fjölmiðlum mikill fengur í því að geta birt leiðbeiningar hennar ætlaðar þeim sem vilja spjara sig sem ljósmyndarar eða fyrir- sætur. Huggy hóf nefnilega frægðarferil sinn aðeins 17 ára gömul sem ljósmyndafyrir- sæta, en þegar hún varð móðir 1988 færði hún sig aftur fyrir vélina og gerðist sjálf ljósmyndari.
RITSTJÓRINN ÞEKKTI EKKI OFURFYRIRSÆTUNA HEIDI KLUM
„Hún kom í ljósmyndastúdíóið hjá mér með fangið fullt af skartgripum sem ég átti að mynda hana með fyrir tískutímarit. Ritstjóri tímaritsins tók á móti henni og þekkti hana ekki. Taldi hana vera sendil skartgripaversl- unarinnar, tók við skartinu og ætlaði síðan að vísa ofurfyrirsætunni á dyr. Ástæðuna tel ég ekki bara hafa verið þá að Heidi var alveg ómáluð heldur ekki síður þá að hún var svo tilgerðarlaus og niðri á jörðinni að ritstjórann grunaði ekki að hér væri komin ein hæst launaðasta fyrirsæta heims.”
STJÖRNUFANS Í STÚDÍÓINU HJÁ HUGGY
Heidi Klum er langt frá því að vera eina fræga fyrirsætan sem Huggy hefur myndað. Eftir að hafa sjálf komið fram á tískusýningum og pósað í stúdíóum með ofurfyrir- sætum á borð við Lindu Evangelista, hefur hún sjálf ljósmyndað fyrirsætuna Claudiu Schiffer og knattspyrnuhetjuna David Becham til að einhver stjörnunöfn séu nefnd. Er vart hægt að finna virt tískutímarit í heiminum sem ekki hefur birt tískuþætti tekna af Huggy. Í seinni tíð hefur það svo færst í aukana að hún taki lifandi auglýsinga- og kynningamyndir fyrir sjónvarp og kvikmyndahús.
Huggy er afar eftirsótt sem ráðgjafi, stílisti, álitsgjafi og stjórnandi á öllum sviðum tískukynninga og auglýsingagerðar. Er óhætt að fullyrða að enginn Íslendingur standi henni jafnfætis á því sviði í heiminum í dag.
SPRATT UPP Á RITSTJÓRNARSKRRIFSTOFU SAMÚELS
Hugrún er íslensk að uppruna en flutti héðan ellefu mánaða til Kaliforníu. Þegar hún var sautján ára sigraði hún í Ford keppninni og vann síðan í nokkur ár fyrir Eileen Ford, eiganda hinnar umsvifamiklu umboðsskrifstofu í New York. Var Huggy einkum að störfum á hennar vegum í Evrópu. Í dag býr hún í London, en er iðulega að störfum í París, New York, Miami, Los Angeles, Tokyo og víðar.
Huggy spratt upp á ritstjórnarskrifstofum Samúels árið 1990 þegar Samúel var að undirbúa úrslitakvöld Hollywood-kepppninnar. Sagðist hafa áhuga á að fá að velja fyrirsætu úr hópi keppenda, sem var að sjálfsögðu auðsótt mál.
Minnist ritstjórinn þess hve Huggy var alúðleg en um leið snaggaraleg. Hún var með það á tæru hvað hún vildi og var fljót að gera grein fyrir sér og sínum fyrir- ætlunum.
Bráðhugguleg stelpa sem ritstjóranum þótti synd að væri alfarið horfin aftur fyrir myndavélarnar …
HUGGY Á VERALDARVEFNUM
Farðu á heimasíðuna hjá Huggy og smelltu á það sem fyrir verður á ísskápshurðinni. Gleymdu ekki að fara á SHOWREEL viljir þú heyra tónlist okkar konu og James Earp um leið og þú sérð myndir Huggyar. SMELLA HÉR
Þú getur líka hlýtt á sex lög þeirra tveggja með því að SMELLA HÉR
Farðu inn á síðu LIVING, framleiðenda fyrirsætukeppninnar, og sjáðu hvernig Huggy leiðbeinir fyrirsætum. SMELLA HÉR
Viljir þú lesa nokkur góð ráð Huggyar varðandi ljósmyndun SMELLIR þÚ HÉR
Hér fyrir neðan má sjá eitt af mörgum sjónvarpsviðtölum við HUGGY:
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.