SJÁ MYNDBAND NEÐST Á SÍÐUNNI
Tony Melendez fæddist handalaus en lét það ekki aftra sér frá því að spila á gítar. Hann hefur heillað milljónir manna með áheyrilegum gítarleik sínum og ekki síður viljastyrk. Hann spilaði fyrir Jóhannes Pál páfa II þegar hans heilag- leiki heimsótti Los Angeles 1987. Páfinn var mjög hrærður og óskaði þess að Melendez héldi áfram að glæða von og trú í hjörtum áheyrenda sinna.
Melendez fæddist í Nicaragua og var eitt hinna fjölmörgu fórnarlamba lyfsins thali- domide, en mæður sem neyttu þess á meðgöngu eignuðust margar hverjar vansköpuð börn.
LAGÐI HANDLEGGINA Á HILLUNA
Móðir hans fékk bætur sem gerðu henni kleift að flytja með soninn til Los Angeles þar sem hann fékk gerfihandleggi. Hann notaðist við þá til tíu ára aldurs en þá lagði hann þá á hilluna í bókstaflegri merkingu og sagðist betur settur án þeirra. Sér þætti þeir óþægilegir.
“Ég get svo mikið frekar notað fæturna,” sagði hann og var þá þegar farinn að skrifa og teikna með hægri fætinum. Hann var lipur í tánum og fór að fikta við að spila á hljómborð og þegar hann var kominn í unglingaskóla var hann farinn að æfa sig á gítar og semja sína eigin tónlist.
HEILLAÐI PÁFA Í LOS ANGELES 1987
Hann varð fljótt trúhneigður og sótti kaþólskar messur reglulega. Hann langaði til að verða prestur en fötlunin kom í veg fyrir að svo gæti orðið. En fötlun hans kom ekki í veg fyrir að hann gæti glatt kirkjugesti með tónlist sinni og fljótlega var honum falið að æfa tónlistaratriði fyrir vissar samkomur kirkjunnar.Tónlistartriðin vöktu mikla aðdáun sem varð til þess að einn þeirra, sem undirbjó komu Páls páfa til Kaliforníu, fór þess á leit við Melendez að hann spilaði eitthvað hugljúft fyrir páfann.
LAGÐI HEIMINN AÐ FÓTUM SÉR
Athöfninni var sjónvarpað út um allar trissur og þar með varð gatan samstundis greið fyrir Tony Mendelez. Síðustu tvo áratugi hefur hann verið á stöðugum hljómleika- ferðum um Bandaríkin og heimsótt ekki færri en fjörutíu lönd. Hann hefur komið fram í óteljandi sjónvarpsþáttum, þar á meðal öllum þeim vinsælustu í Bandaríkju num.
Honum hefur líka hlotnast sá heiður að spila fjórum sinnum í viðbót fyrir páfa og þá tvisvar í sjálfu Vatikaninu. Ævisaga hans kom út strax tveimur árum eftir að hann spilaði fyrir páfann í fyrsta skipti. Sama ár, 1989, kom fyrsta hljómplata hans á mark- aðinn. Hún ber nafnið Never the Same og hefur að geyma trúarlega tónlist. Þeir sem hafa eitthvað efast um hæfileika Mendelez skulu upplýstir um það, að platan hlaut verðlaun sem Besta byrjendaplata ársins frá Cashbox Magazine and the Gospel Music Association. Næsta plata hans kom út strax árið eftir og þar var latin músíkin í hávegum. Smáskífa, sem gefin var út til kynningar áður en breiðskífan kom út, komst í þriðja sæti vinsældalista vestra.
Nýjasta plata hans ber nafnið Hands in Heaven. Hún er leikandi létt og ekki er trú, von og kærleikur langt undan frekar en fyrri daginn.
EKKERT ER ÓMÖGULEGT EF VILJINN ER ...
Tony Mendelez hafa hlotnast fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir einstakan hæfileika til að telja kjark í fólk og veita því trú á mátt sinn og megin. Það er líka ólíklegt að mörgum sé mögulegt að sanna betur þá fullyrðingu að ekkert sé ómögu- legt sé viljinn fyrir hendi. Ef svo má að orði komast ...
Hér á eftir má sjá myndband sem rekur sögu þessa einstaka manns og má þar m.a. sjá hann spila fyrir páfann í Los Angeles. Ef þú vilt sjá fleiri myndbönd með Tony Mendelez smellir þú HÉR
(Sendu líka vinum þínum slóðina á þessa síðu. Hvað er betur til þess fallið að stappa stálinu í mannskapinn en að kynnast Mendelez örlítið?)
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.