Friðrik Þór Friðriksson var rétt rúmlega tvítugur þegar hann gerði sína fyrstu stuttmynd, Nomina Sunt Odiosa. Fimm árum síðar gerði hann aðra kvikmynd. Stuttmynd með stóru nafni, Brennu Njáls saga. Þá tóku við þrjár heimilda- myndir, Eldsmiðurinn, Rokk í Reykjavík og Hringvegurinn.
Almenningur hafði þá áttað sig á kímnigáfu Friðriks Þórs, sem í Brennu Njáls sögu kveikti í doðranti (og gerði þannig mörgum gramt í geði) og í annarri mynd brunaði hann hringveginn á áttatíu mínútum.
Kvikmyndina Skytturnar gerði hann árið 1987 en síðan hafa komið sjö aðrar kvikmyndir í fullri lengd. Þeirra þekktust er myndin Börn náttúrunna r, sem tilnefd var til Óskars- verðlauna árið 1991.
Hinar myndirnar hans eru:
Bíódagar, 1994
Á köldum klaka, 1995
Djöflaeyjan, 1996
Englar alheimsins , 2000
Fálkar, 2001
Niceland, 2004
"Frikki kemur manni alltaf á óvart. Til dæmis getur hann tekið upp á því að ljúga einhverju að manni bara til að æsa mann upp og fá á móti sér þannig að maður fer í vont skap þar til maður áttar sig á því að hann var að grínast," sagði Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarmaður í viðtali við Samúel 1992.
Fljótlega eftir að Friðrik Þór hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna snéri Samúel sér til nokkurra vina kvikmyndaleikstjórans. Voru þeir beðnir um að lýsa Friðriki Þór í fáeinum orðum. Grípum niður í nokkuð af því sem vinirnir höfðu að segja í viðtölum við blaðamann Samúels, Jóhann Guðna Reynisson:
"Hann er ákaflega lunkinn við að koma sér á framfæri án þess að vera áberandi framhleypinn," sagði Guðbrandur Gíslason þáverandi framkvæmda- stjóri Kvikmyndasjóðs.
Sem dæmi tók Guðbrandur það, að þegar þeir fóru á kvikmyndahátíðina í Cannes hafi Friðrik Þór farið um alla borgina og hengt upp um allt auglýsingaspjöld fyrir mynd sína Skytturnar þannig að sýning hennar færi nú ekki framhjá neinum.
"Þegar ég kynntist honum fyrst fannst mér hann mjög hrjúfur, ég segi ekki einkennilegur en mjög sérstakur. Síðan hef ég séð að bak við þetta yfirborð leynist fín og falleg sál," sagði Guðbrandur. Hann hélt áfram:
"Friðrik Þór er laus við alla frekju og yfirgang og virðist vera forlagatrúar eins og hann viti að það sem hann tekur sér fyrir hendur gangi upp. Ef ekki í dag þá á morgun. Hann býr yfir mikilli kímnigáfu, en fer vel með hana og fer ekki blaðskellandi um allar jarðir."
Í lýsingu Guðbrandar árið 1992 kvað hann Friðrik Þór hafa lagt allt í sölurnar fyrir kvikmyndagerðina. Viðhorf hans til hagnaðar hafi verið það, að fyrir peninginn mætti gera fleiri myndir. "Hann sér ekki fyrir sér stærra hús og flottari bíla því hann þekkir varla muninn á Mercedes Benz og Trabant." Raunar var Friðrik Þór ekki kominn með bílpróf á þessum tíma og ekki víst að hann hafi gefið sér tíma til að læra á bíl ennþá.
"Hann er rosalega montinn en má alveg vera það enda fer hann vel með það," sagði Árni Páll Jóhannesson myndlistarmaður.
Til marks um húmor Friðriks Þórs sagði Árni Páll frá því þegar vinurinn gerði myndina Falling in love en á henni er hann sjálfur, fallandi maður með blómvönd. Einnig hafi hann tekið fyrir máltækið að renna blint í sjóinn með eitthvað, kallaði myndina Sliding blind into the sea og þar var hann með bundið fyrir augun að renna fram af bryggjusporði.
Þeir Friðrik Þór og Árni Páll kynntust árið 1976 og unnu mikið saman lengi vel. Meðal annars að myndunum Rokk í Reykjavík, Skyttunum og Börnum náttúrunnar en Árni Páll gerði leikmyndina í fyrri hluta hennar. (Þá brá ofangreindum Guðbrandi fyrir í hlutverki forstöðumanns elliheimilisins.)
"Það er mjög fínt að vinna með Frikka," sagði Árni Páll. "Hann er ekki með nein læti heldur alveg sérstakt ljúfmenni. Hann er mjög iðinn, spáir mikið og spekúlerar en það kemur til góða við kvikmyndagerðina því þar er oft úr lágum peningaupphæðum að spila og því mikilvægt að dæmið liggi fyrir þegar hafist er handa."
"Það þarf ekki að flytja inn ítalska smyglara eða viiðfangsefni sem menn halda að gangi ... Þetta hefur Friðrik vitað allan tímann," sagði Einar Már Guðmundsson rithöfundur.
Einar Már er æskuvinur Friðriks Þórs en þeir kynntust í Vogahverfinu, þá níu ára gamlir. Síðan hafa þeir iðulega unnið saman að handritagerð, skrifuðu meðal annars handritið að Börnunum náttúrunnar. Þegar Samúel ræddu við Einar Má um Friðrik Þór 1992 var nýbúið að tilnefna kvikmyndina til Óskarsverðlauna.
"Í sambandi við þessa tilnefningu og þá athygli sem myndin vekur gæti skapast áhugi á leið okkar Íslendinga til að segja sögur, það er að segja, söguefnin eru hér við þröskuldinn. Það þarf ekki að að flytja inn ítalska smyglara eða viðfengsefni sem menn halda að gangi. Þetta eru æ fleiri kvikmyndagerðarmenn að skilja en Friðrik hefur vitað þetta allan tímann."
Þegar Einar Már var beðinn að lýsa vini sínum sagði hann: "Karakterinn er svipaður og myndirnar, raunsær en svolítið dularfullur, en það er ekki allt sem sýnist og hann fær hjálp frá ýmsum góðum öndum sem eru á kreiki og leiðbeina honum. Þess vegna hefur Friðrik líka átt auðvelt með að standa af sér ýmsa erfiðleika á framabrautinni."
Hér fyrir neðan má sjá kynningu á myndinni Englar alheimsins (2000) sem Friðrik Þór gerði eftir bók Einars Más. Til að sjá asíska kynningu á Börnum náttúrunnar smellir þú HÉR .
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.