Myndina hér fyrir ofan tók GASSI. Við fengum að kíkja í albúmið hans og pikka út myndir af áhugaverðu fólki sem við munum fá til að tjá sig um eitt og annað jákvætt líkt og Sigfús gerir hér til hliðar.
Tækifærismyndin hér fyrir neðan er úr eigu Fúsa og sýnir eina ástæðuna fyrir því að Sigfús segist geta glaðst.
Samúel bað landsliðsmanninn brosmilda Sigfús Sigurðsson að telja upp tíu atriði sem gleðja hann helst. Það stóð ekki á svari. Samúel datt si svona í hug, að það væri öllum hollt að staldra við af og til og hugleiða til tilbreytingar hvað sé jákvætt í lífinu og hvort ekki sé í rauninni ærleg ástæða til að gleðjast yfir þó nokkuð mörgu.
Ég er rosalega þakklátur fyrir að sonur minn er heilbrigður!
Ég er þakklátur fyrir að eiga fallega og góða fjölskyldu!
Ég er þakklátur fyrir að lýða ekki hungur!
Ég er þakklátur fyrir að að vera ekki fæddur á stríðssvæði!
Ég er þakklátur fyrir að vakna heilbrigður á morgnana!
Ég er þakklátur fyrir að hafa þak yfir höfuðið!
Ég er þakklátur fyrir að fá að taka þátt í lífinu!
Ég er þakklátur fyrir að sjá nýfædd börn og sjá fegurðina hjá þeim!
Ég er þakklátur fyrir að brosið sem einhver sendir mér á hverjum degi!
Ég er þakklátur fyrir að geta kannski haft jákvæð áhrif á líf einhverra!
Til að skoða albúmið hans GASSA smellir þú HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.