OPNAÐI SAMUEL.IS Í BEINNI
Sigurður Hlöðversson er enginn nýgræðingur í útvarpi. Hann hefur einnig verið í sjónvarpi, en núna er liðinn áratugur síðan hann og Valli vinur hans og félagi fóru af stað með þáttinn Hausverk á Skjá einum. „Við fórum af stað með þáttinn meira í gríni en alvöru,” segir hann. En grínið stóð í þrjú ár. Vináttan hélst hins vegar óbreytt og hafa þeir félagarnir rekið saman auglýsingastofu undir nanfinu Pipar í hálfan annan áratug.
Á NÆTURVAKT RÁSAR TVÖ Á FERMINGARALDRI
Það er enn lengra síðan Siggi Hlö fór að reyna fyrir sér sem plötusnúður. Var ekki nema tólf ára gamall þegar hann fékk fyrsta tækifærið og þá sem plötusnúður í Seljaskóla.
„Eftir að hafa komið mér upp stúdíói í kjallaranum heima og æft mig með því að framleiða efni á marga kílómetra af spólum sótti ég það stíft að komast að í útvarpi. Frjálst útvarp var að detta inn en ég hjólaði í Rás 2. En ég þótti of ungur – þangað til Óli Þórðar dagskrárstjóri gafst upp og kippti mér inn sem aðstoðarmanni á nætur- vöktum árið 1986,” rifjar Siggi upp í viðtali við Samúel.
Siggi gat þá þegar státað af því í atvinnuumsókninni, að hafa nokkru áður verið útvarpsstjóri. Nefnilega Útrásar, útvarps framhaldsskóla.
MIKLAR BREYTINGAR SAMFARA TÖLVUTÆKNINNI
Af Rás 2 lá leið Sigga á Stjörnuna þar sem hann starfaði þar til stöðin varð gjald- þrota en þá fór hann á Bylgjuna og starfaði þar allt fram til ársins 1996. Þá tók við eitt ár á Útvarp Matthildi.
Nú eru liðin 22 ár síðan Siggi hóf störf við útvarp. „Breytingarnar sem hafa fylgt allri tölvutækninni eru miklar. Það er ekki hægt að líkja þessu saman,” segir hann. „Í upphafi vorum við bara með vinylpötur og þá lá maður yfir plötuumslögum. Það tók mann þrjá tíma aukalega að undirbúa þættina. Svo kom geisladiskurinn og gerði hlutina þægilegri. Núna eru það tölvurnar sem keyra alla tónlist áfram og dagskrár- gerðarmaðurinn getur betur einbeitt sér að handritinu.”
OFT TÍMAFREK LEIT AÐ ÓSKALÖGUNUM
Siggi segir stundum geta verið vandkvæðum bundið að finna sum þeirra gömlu laga sem hlustendur þáttarins “Veistu ekki hver ég var” eru að biðja hann um.„Í þáttinn minn á Bylgjunni hringja mjög margir. Hlustendur vita núna hvaða árabil ég er mest að spila. Margir eru að reyna á þolrifin í mér og biðja um lög sem hafa ekki heyrst í langan tíma. En mér hefur tekist að finna lögin. Þó að það taki allt upp í tvær til þrjár vikur hef ég undantekningalaust komið til baka með óskalögin. Þurfti t.d. um daginn að verða mér úti um lag af vinylplötu og láta spila það inn á tölvu til að koma því í loftið á Bylgjunni. En það tókst.”
ALGJÖR ALÆTA Á TÓNLIST
Plötusafn Sigga hefur stöðugt verið að stækka. “Fyrst voru það vinylplöturnar sem hlóðust upp og núna eru það geisladiskarnir. Ætli ég eigi ekki yfir tvö þúsund geisladiska,” segir Siggi. “Núna stækkar lagasafnið á hörðum tölvudiskum. Ég hef nefnilega verið mjög duglegur að koma safninu mínu í tölvutækt form. Kaupi líka mikið af tónlist og sérstaklega af tónlist.is.
Ég er alger alæta á tónlist eins og sést vel á tónlistarsafni mínu. Ég á Sex Pistols safnið, ELO, Robbie Williams og U2. Credence Clearwater og Madness eru mjög ofarlega á mínum lista ásamt Bítlunum. Diskóið og 80´s á líka stóran sess í hjarta mínu.” Honum leiðist því ekki sú tónlist sem hann leikur fyrir hlustendur Bylgjunnar á laugardögum.
MIKIL NOSTALGÍA Í GANGI Í ÞJÓÐFÉLAGINU
„Það er mikil nostalgia í gangi í því árferði sem nú er,” segir Siggi. „Ég hef heldur aldrei haft eins mikið að gera í að DJ-ast í samkvæmum með þessa gömlu tónlist og þátturinn minn er einn sá vinsælasti á Bylgjunni. Fólk er hreinlega að hugsa til gömlu góðu daganna þegar allt var eitthvað svo einfalt og áhyggjulaust. Já, fortíðin er komin aftur í nútímalegri mynd.”
Ertu enn að starfa sem plötusnúður ?
„Já, það er bara að aukast hjá mér. Við erum fjórir saman með hóp sem kallar sig Boogienights og höfum sett upp vefsíðuna www.boogienights.is Mæli með að fólk kíki þar inn. Þar er spilari sem fer í gang með hágæða diskó tónlist um leið og komið er inn á síðuna. Hef heyrt um vinnustaði sem hreinlega nota síðuna okkar sem útvarp!”
SITTHVAÐ ÚTVARPSTÓNLIST OG BALLTÓNLIST
Hver er munurinn á því að spila tónlist í útvarpi og á böllum?
„Munurinn? Það er til það sem ég kalla útvarpsdiskó, lög sem hljóma rosalega vel í útvarpi og koma manni í gott stuð, en virka illa þegar maður stendur á dansgólfi og vill dansa."
Hver er þinn besti kúnnahópur á dansleikjum?
„Ég er sterkastur í fertugs- og fimmtugsafmælum. Skil þann aldur svo vel. Öll fyrir- tækjapartý eru líka sterk. Í sumar spilaði ég í mörgum brúðkaupum og sló alls staðar í gegn, þó ég segi sjálfur frá.”
Hvaða skemmtistaði stundaðir þú þegar þú varst sprækastur í næturlífinu?
„Ég náði öllum unglingaskemmtistöðunum, Villta tryllta, D14 og Best. Var að reyna að svindla mér inn í Holly, Klúbbinn og gamla Sigtún, en ég þótti afskaplega barna- legur þannig að það gekk illa. Hafði svo loks aldur. Þá var Sigtún hætt niðri, en búið að opna skemmtistað á efri hæðinni með 18 ára aldurstakmarki og þar hékk ég.”
FERTUGUR FJÖLSKYLDUFAÐIR - OG VINNUFÍKILL ...
Í dag er Siggi fertugur og líklegri til að vera að fara að vinna á skemmtistöðunum frekar en til að sletta þar sjálfur úr klaufunum. Hann er fjölskyldumaður. „Við erum fjögurra manna fjölskylda,” útskýrir hann. “Við Þorbjörg erum búin að vera saman í tuttugu ár og eigum tvö börn, Hlöðver, sem varð nítján ára um daginn, og Matthildi, sem er fjórtán ára.
Ég verð sennilega alltaf hálfgerður vinnufíkill - nema helst heima hjá mér, þar kem ég nánast engu í verk og það þarf Þorbjörg að þola," segir plötusnúðurinn, auglýs- ingafrömuðurinn og fjölmiðlamaðurinn Siggi Hlö - og bætir því við að lokum, að hann sé til í að taka að þér starf leiðsögumanns í hjáverkum. Hann hefur margra ára reynslu sem slíkur og er enn að skjótast með hópa úr landi. Einkum í tónleika- og knattspyrnuferðir.
Og nú er bara að stilla á Bylgjuna klukkan fimm á laugardaginn.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.