Á þessari mynd gefur að líta nokkrar af skærustu stjörnurnar í íslensku poppi haustið 1968. Fólk sem sannir poppunnendur geta nefnt með nafni þó að fæst þeirra standi nú lengur á hljómsveitarpalli um hverja helgi líkt og forðum. Myndin var tekin fyrir forsíðu annars tölublaðs Topp Korns, sem var forveri Samúel á íslenskum tímaritamarkaði.
Ritstjóri tímartsins, Þórarinn Jón Magnússon, mætti í eðaldiskótekið Las Vegas við Grensásveg ásamt ljósmyndaranum Kristni Benediktssyni þegar hljómsveitin Flowers var þar að leik. Ætlunin var að taka hljómsveitarmynd af strákunum í Flowers, en á meðal áheyrenda reyndust vera svo spennandi hljómlistarmenn til viðbótar að þeir voru dregnir upp á svið líka.
GESTIR SUNNAN MEÐ SJÓ
Með Flowers voru fengin í myndatökuna þau Engilbert Jensen og Shady Owens úr Hljómum, Vignir Bergmann gítarleikari í Júdas, Óttar Felix Hauksson úr Pops og Kristín Ólafsdóttir þjóðlagasöngkona. Ef vel er að gáð má svo líka sjá Gústa rótara fela sig á bak við dökk sólgleraugu í skugga hljómsveitarinnar.
DRÓ NAFN SITT AF BLÓMABYLTINGUNNI
Hljómsveitin Flowers dró nafn sitt af blómabyltingu hippanna (Flower Power). Hljómsveitina stofnuðu þeir Arnar Sigurbjörnsson gítarleikari, Rafn Haraldsson trommuleikari og Jónas R. Jónsson söngvari, en þeir komu allir úr hljómsveitinni Toxic. Auk þeirra voru svo í hljómsveitinni tveir bræður ofan af Skaga, þeir Sighvatssynirnir Sigurjón bassaleikari og orgelleikarinn Karl Jóhann. Sigurjón (eða Kútur eins og hann var gjarnan kallaður) hafði spilað með Mods en Karl með Tónum og Dátum.
JÖKULLINN HAFÐI RUTT RAFNI ÚR VEGI
Rafn hvarf úr hljómsveitinni þegar Gunnar Jökull Hákonarson kom til landsins eftir að hafa orðið svo frægur að leika á trommur með hljómsveitinni Syn, sem öðlaðist heimsfrægð árið 1969 undir nafninu Yes. Gunnar hafði áður leikið hér heima með Kalla Sighvats í Tónum.
Þegar þessi mynd var tekin hafði Gunnar tekið sæti Rafns við trommurnar eins og sjá má, en Rafn var þá farinn að njóta mikilla vinsælda sem diskótekari á Las Vegas. Á þeim stórðgóða skemmtistað hafði Þorsteinn Eggertsson einmitt samið textann við lagið Slappaðu af, sem vakti mesta athygli laganna sem Flowers sendu frá sér á fjögurra laga plötu.
SÍÐAR VÉK JÓNAS FYRIR BJÖGGA
Skömmu eftir myndatökuna var Jónasi R. skipt út fyrir hafnfirðing sem hafði sungið í sínum heimabæ með hljómsveitinni Bendix. Þar var kominn Björgvin Halldórsson. Bjöggi hafði vart hafið upp raust sína með Flowers þegar hljómsveitin leystist upp í kjölfarið á því að Kalli og Gunnar hurfu suður með sjó til að taka þátt í stofnun súperbandsins Trúbrot í félagi við meirihluta Hljóma. Las Vegas kom þar við sögu, en sagan segir að nafnarnir Gunnar Þórðarson og Jökull hafi rætt málin fram í dagrenningu eftir að Flowers höfðu verið þar að leik. Niðurstaðan varð sú að sameina það besta úr hvorri sveit, röddunarhefðina frá Hljómum og hrynræna þáttinn frá Flowers.
ÞRÍR ÞEIRRA LÉTUST FYRIR ALDUR FRAM
Báðir trommarar Flowers, þeir Gunnar og Rafn, létust báðir langt fyrir aldur, fram svo sem kunngt er. Sömuleiðis Karl Sighvatsson.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.