Þeim leiddist ekki teitinu í fyrrakvöld. Forest Whitaker og Cuba Gooding jr. stigu báðir á svið og ávörpuðu heiðursmanninn Morgan Freeman.
Morgan Freeman heiðraður
Morgan Freeman veitti í fyrradag (10 . júní) viðtöku heiðursverðlaunum sem bera þann langa titil American Film Institute’s Life Achievement Award og eru veitt fyrir aðdáunarvert framlag til kvikmyndalistarinnar eins og nafnið ber með sér. Afhendingin fór fram í Sony stúdíóinu þar sem vinir og kollegar leikarans fjölmenntu. Þar á meðal voru Clint Eastwood, Sidney Poitier, Helen Mirren, Samuel L. Jackson, Tim Robbins og Forest Whitaker. Flottur selskapur það.
Morgan Freeman, sem er 74 ára, hlýddi á hverja stjörnuna á fætur annari bera lof á leikhæfileika hans og vinalegt viðmót. Sat leikarinn við háborðið brosandi út undir eyru undir ræðuhöldunum. Samuel komst þanng að orði að í yfirborðslegum heimi væri Freeman "the real thing" og Tim Robbins, sem lék á móti honum í myndinni „The Shawshank Redemption”, kvað það hafa verið sannan heiður að hafa verið lokaður inni með honum.
Clint Eastwood fór ekki heldur dult með aðdáun sína á leikaranum og kallaði hann "stórkostlegasta leikarann". Sagði hann Freeman vera ákaflega gefandi og bætti við: "Ég veit ekki hvort það er viðeigandi að elska annan karlmann, en þetta er eins nálægt því og það getur orðið."
Athöfnin stóð í þrjá og hálfan tíma. Á milli ræðuhaldanna voru sýnd valin brot úr kvikmyndum með leikararanum allt frá sjöunda áratugnum. Freemn er 39. í röðinni til að hljóta heiðursverðlaun AFI. Meðal þeirra sem áður hafa verið heiðraðir má telja Sidney Poitier, Eastwood, Astaire, Elizabeth Taylor, Steven Spielberg og Alfred Hitchcock.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.