Komið er almennilegt sýnishorn úr kvikmyndinni um ævintýrið á bak við samskiptasíðuna Facebook, en hún verður frumsýnd í Bandaríkjunum 1. október. Segir myndin sögu Mark Zuckerberg, stofnanda Facebook. Minnstu munaði að hann yrði rekinn úr Harvard á sínum tíma þegar hann var staðinn að því að hafa hakkað sig inn á tölvukerfi skólans, einkum til að forvitnast um heitustu skólasysturnar. Hann slapp með skrekkinn … og hugmyndin að Facebook-síðunni var komin fram.
Kvikmyndin ber nafnið The Social Network og er gerð eftir metsölubók Ben Mezrich The Accidental Billionaires: The Founding of Facebook, a Tale of Sex, Money, Genius and Betrayal, en handritið skrifaði Emmy-verðlaunahafinn Aaron Sorkin. Leikstjóri myndarinnar ætti líka að vera trygging fyrir þokkalegri mynd, en það er David Fincher sem leikstýrði myndunum Se7en, Fight Club og Zodiac.
Með hlutverk Mark Zuckerbergs fer Jesse Eisenberg, úr myndinni um Kongulóarmanninn, en í myndinni um Facebook fara þeir Justin Timberlake og Andrew Garfield einnig með stór hlutverk. Sá fyrrnefndi leikur samstarfsmann Zuckerbergs en Timberlake leikur stofnanda Napster vefsíðunnar.
Það þótti nokkuð bíræfið að setja fram auglýsingaveggspjald fyrir Facebook myndina í fyrra með orðunum Þú eignast ekki 500 milljón vini án þess að eignast líka nokkra óvini. Sannleikurinn var nefnilega sá að vinasamfélag Facebook samanstóð þá ekki nema af um 400 milljón notendum. Í maí á þessu ári var talan hins vegar komin upp í 450 milljónir og fór ört vaxandi. Er talið að notendafjöldinn sé nú kominn yfir 500 milljónir þó að aðstandendur Facebook hafi ekki enn tilkynnt það formlega eins og til stóð.
Það er nokkuð víst að fárra mynda er beðið með meiri eftirvæntingu um þessar myndir en þessarar kvikmyndar um stærsta miðilinn í netheimum. Líttu á sýnishornið hér fyrir neðan. Í bakgrunninum má heyra belgískan stúlknakúr kyrja lag hljómsveitarinnar Radiohead Creep.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.