Angelina Jolie (34) mun að öllum líkindum fara með hlutverk Kleopötru í kvikmynd sem ákveðið hefur verið að gera um ævi þessarar sögufrægu drottningar Egypta til forna sem var uppi 69. til 30. f. Krist. Segir sagan að Brad Pitt (46) þyki hæfa vel í hlutverk elskhuga drottningar sem Burton lék á sínum tíma.
Höfundur bókarinnar, Pulitzer höfundurinn Stacy Schiffs, hefur l ýst þeirri skoðun sinni að heppilegri leikara væri vart hægt að fá í hlutverkin sem þau Elísabet Taylor og Richard Burton gerðu svo stórkostleg skil árið 1963. Það var þá sem þau felldu hugi saman rétt eins og Jolie og Pitt er þau léku saman í myndinni Mr and Mrs Smith . Þau Taylor og Burton giftust tvisvar og í dag segist hún sjá eftir því að hafa ekki gifst honum í þriðja sinn.
Kvikmyndaréttinn að sögu skáldkonunnar keypti Scott Rudin sem framleiddi kvikmyndirnar No Country for Old Men og Revolutionary Road. Sú fyrrnefnda hlaut fern Óskarsverðlaun 2009 og sú síðar nefnda var tilnefnd til verðlauna í fyrra.
Kleópatra dro ttning er sögð aðeins hafa sængað með tveimur körlum, annars vegar Markúsi og hins vegar Julíusi Caesar, en báðir voru þeir kvæntir öðrum konum. Hún gerði bandalag við Markús eftir dauða Caesars. Hún giftist honum síðar og átti þrjá syni með honum. Þegar Octavíuanus (síðar Ágústus keisari), lögmætur erfingi Caesars, réðist inn í Egyptaland með rómverska herinn, framdi Kleópatra sjálfsmorð. Mikil saga sem Stacy þykir gera einkar góð skil í ævisögu hinnar sögufrægu drottningar.
Þess má geta að kvikmyndin um Kleópötru hlaut fern Óskarsverðlaun á sínum tíma og varð tekjuhæsta mynd ársins, en hún öðlaðist þann vafasama heiður að verða eina kvikmyndin í sögunni (til þessa) sem gerð hefur verið með bullandi tapi.
Hér fyrir neðan er úrdráttur úr kvikmyndinni um Kleópötru frá 1963.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.