Sharon Stone er hálfrar aldar gömul og einu ári betur. Hún er fædd 10. mars 1958 og eldist býsna vel. Væri jafnvel alveg líkleg til að taka eins og eina eða tvær nektarsenur enn ef Samúel þekkir hana rétt. Þegar Sharon Stone var spurð að því hvers vegna hún ljáði máls á því að koma fram nakin í Basic Instinct 2 fyrir tveimur árum svaraði hún því til að sér þótti það heppilegra en að bíða me h; það þar til hún yrði 73ja ára.
Leikkonan segir að sjálfsagt hafi nektarsenurnar átt sinn þátt í að draga athyglina að myndum hennar, en hún sé þess fullviss að það sé leikur hennar sem þó standi uppúr þegar menn horfi á myndirnar. Það er líka ólíklegt að ef hún hefði ekki annað fram að færa en kroppinn einan stæði Emmy-verðlaunagripur á arinhillunni og sömuleiðis eintak af Gullna hnettinum. Auk þess var hún tilnefnd til Ókarsverðlauna fyrir aðalhlutverkið í Casino.
KYNÞOKKAFYLLSTA ATRIÐI KVIKMYNDASÖGUNNAR!
Þegar ráðist var í töku Basic Instinct 2 voru liðin fjórtán ár frá töku fyrri myndarinnar. Sharon Stone þó tti jafn frambærileg og fyrr, en einhverra hluta vegna var hann Michael Douglas ekki með í seinni myndinni.Það þótti víst heppilegra að finna leikkon- unni yngri elskhuga þó hún væri sjálf orðin 48 ára gömul.
Í fyrri myndinni er atriði sem skráð hefur verið á spjöld Hollywood sem kynþokkafyllsta sena kvikmyndasögunnar, atriðið þegar hún krossleggur fæturnar í yfirheyrslu. Sáraeinfalt en yfirmáta erótísk. SMELLA HÉR
SHARON STONE REIDDIST ÞEGAR KRASSANDI SENA VAR KLIPPT ÚT
Stone sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir hve opinskátt atriðið yrði og enn síður hugsað út í það, að vídótæknin gerði aðdáendum hennar kleyft að stækka upp atriðið ramma fyrir ramma og horfa á hana í hægagangi. Hún var samt ekki með neinn tepruskap við töku seinni myndarinnar og gekk af göflunum þegar hún komst að því að leikstjórinn hafði klippt burtu það nektaratriði sem henni þótti mest krassandi.
VILL EKKI NEINN TEPRUSKAP
„Hvað er svona merkilegt við rúmsenur í kvikmyndum,” sagði hún eitt sinn á blaða- mannafundi þegar ákafir fréttamenn vildu ræða nektarsenurnar í þaula. “Þar eiga sér bara stað samskipti kynjanna og ekki ástæða til að vefja þá inn í sængur- fatnað þó þeir elskist. Það er ekki bara teprulegt heldur líka óraunverulegt og gerir senurnar ótrúverðugri.”
Til að sjá yfirlit yfir helstu nektarsenur í kvikmyndum Sharon Stine smellir þú HÉR
KRÖFÐU SHARON STONE UM RÍFLEGA HUNDRAÐ MILLJARÐA
Eins og vinsælir Hollywood-leikarar gera gjarnan hefur Sharon Stone lagt orð í belg varðandi stjórnmál. Hitti til dæmis Simon Peres að máli til að ræða samskipti Ísraela og Plaestínumanna.
En hún hefði hins vegar mátt hugsa sig aðeins betur um áður en hún tjáði sig í fyrra um jarðskjálftana sem urðu fjölda Kínverja að bana. Hún lét þau orð falla að ef til vill væri verið að refsa þeim fyrir eitthvað sem þeim hafi orðið á í fyrra lífi. Aðstandendur hinna látnu brugðust ókvæða við og kröfðust skaðabóta fyrir ummælin. Vildu þeir fá ríflega hundrað milljarða króna til að geta jafnað sig á þessum gáleysislegu orðum leikkonunnar. (Svo er verið að álasa Björk fyrir að minnast á Tíbet á tónleikum sínum.)
Hér bregður Sharon Stone sér í sturtu með Sylvester Stallone í kvikmyndinni The Speciallist. Beita þurfti brellum til að fiffa hæðarmun leikaranna. Stallone er styttri ... Smella HÉR
Basic Instinct. Hér er sjóðheit rúmsena í uppsiglingu. Það þótti heppilegra að finna yngri elskhuga en Michael Dougles fyrir Sharon Stone þegar framhaldið var kvikmyndað hálfum öðrum árarug síðar.
Til að sjá atriðið smellir þú HÉR
Að lokum er hér smá jóke byggt á frægu atriði:
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.