HVER ÞEIRRA ER BEST?
Evrópskir kvikmyndaunnendur voru beðnir um að greiða myndum Clint Eastwood atkvæði eftir ágæti þeirra. Niðurstöðuna má sjá hér fyrir neðan. Ertu sammála?
The Good, the Bad and ... (1966)
For a Few Dollars More (1965)
A Fistful of Dollars (1964)
Dirty Harry (1971)
Escape from Alcatraz (1979)
Kelly's Heroes (1970)
Unforgiven (1992)
Pale Rider (1985)
Million Dollar Baby (2004)
Where Eagles Dare (1969)
Hang 'em High (1968 )
Mystic River (2003)
The Bridges of Madison (1995)
Heartbreak ipt"> Ridge (1986)
The Outlaw Josey Wale (1976)
Magnum Force (1973)
Space Cowboys (2000)
In the Line of Fire (1993)
The Rookie (1990)
Sudden Impact (1983)
A Perfect World (1993)
Firefox (1982)
The Enforcer (1976)
Vídeó: Tíu mínútna viðtal við Clint Eastwood neðst á síðunni.
Clint Eastwood veitti í gærkvöldi viðtöku heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Verðlaunaafhend- ingin fór fram í París og að henni stóðu sömu aðilar og veita Gullna pálmann ár hvert og var þa eth; Gilles Jacob, forseti kvikmyndahátíðarinnar, sem afhenti Eastwood pálmann.
Það hefur aðeins einu sinni gerst áður að athöfn sem þessi fari fram utan sjálfrar hátíðarinnar, sem er jafnan haldin í maí. Það var þegar Ingmar Bergman var heiðraður árið 1997. Þar sem ljóst var að Eastwood yrði upptekinn við kvikmyndatökur í Afríku í maí var þessi undanteking gerð.
FANN MEIRI STUÐNING Í FRAKKLANDI EN BANDARÍKJUNUM
„Ég er afar hrærður,” sagði hinn 78 ára gamli leikari og leikstjóri þegar hann veitti heiðursverðlaununum viðtöku í gær. „Frakkland er fyrrsta landið í heiminum til að viðurkenna kvikmyndagerð sem listform.” Rifjaði hann það upp er hann mætti skjálfandi á beinunum á kvikmyndahátíðina í Cannes árið 1960 með sína fyrstu kvikmynd, kúrekamyndina Hnefafylli af dollurum. „Pínulitla mynd með óþekktum leikstjóra og óþekktum leikara ….sem betur fer stóð það ekki lengi.”
Með eiginkonu sína og tvær dætur sér við hlið sagði Eastwood í þakkarræðu sinni að hann væri frönskum kvikmyndaiðnaði þakklátur fyrir þann stuðning sem hann hafi veitt honum snemma á ferlinum. Hann hafi ekki alltaf notið sama skilnings í sínu heimalandi, Bandaríkjunum. „Þegar ég hafði leikstýrt minni fyrstu kvikmynd árið 1970, fyrir 39 árum, kvöttu franskir gagnrýnendur mig til að gera það oftar á meðan samlandar mínir voru afar áhugalausir ….. það sögðust allir vera í vafa um það hvort þeim líkaði ver við mig sem leikara en leikstjóra."
UPPHAFSVERÐLAUN!
Frumraun hans sem leikstjóra var myndin Play Misty For Me. Kvikmyndirnar sem hann hefur leikstýrt og jafnframt leikið í eru orðnar tuttugu og tvær. Þeirra á meðal eru myndirnar Unforgiven (1992) og Million Dollar Baby (2004), en hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir þær sem leikstjóri auk þess sem myndirnar voru báðar valdar bestu myndir ársins.
Við verðlaunaafhendinguna í gær sagði Gilles Jacob að í Bandaríkjunum kölluðust verðlaun af þessu tagi a lifetime achievement award. Í Frakklandi þýd di orðið achievement verklok. „En Clint Eastwood er langt frá því að vera hættur. Við viljum kalla þetta Upphafsverðlaun,” sagði sá gamli.
HÆTTUR AÐ LEIKA?
Eastwood er staddur í París til að kynna sína nýjustu kvikmynd, Grand Torino, en sýningar á henni hófust í frönskum kvikmyndahúsum í gær en hér verður hún frumsýnd 6. mars n ig;stkomandi. Eastwood fer með aðalhlut- verkið, aldraðan en grjótharðan Dirty Harry. (Sjá vídeó hér fyrir neðan.) Skrifaði hann að auki handrit myndarinnar og leikstýrði. Hefur Eastwood gefið í skyn að þetta hafi verið hans síðasta kvikmyndahlutverk, en hann hafi hins vegar áhuga á að fást eitthvað áfram við leikstjórn. Um þessar mundir vinnur hann að gerð myndarinnar The Human Factor þar sem Morgan Freeman fer með hlutverk Nelson’s Mandela, en Matt Damon fer þar einnig með stórt hlutverk. Myndin verður frumsýnd í árslok.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.