Sandra Bullock fer með aðalhlutverkið í tveimur gamanmyndum sem verða frumsýndar hvor á fætur annari. Bónorð heitir myndin sem frumsýnd verður um páskana. Þar lætur hún sig hafa það, að koma fram kviknakin, aðdáendum sínum af sterkara kyninu áreiðanlega til óblandinnar ánægju.
Liðinn er nær aldarfjórðungur síðan Sandra Bullock heillaði kvikmyndaáhorfendur með fínum leik í kvikmyndinni Speed. Í dag er hún orðin hálf fimmtug, en er enn jafn kynþokkafull. Í gamanmyndunum tveimur fer hún með ólík hlutverk. Annars vegar ljósku sem snarfellur fyrir karlmanni og hins vegar röggsaman kvenmann sem neyðir nærtækasta karlmanninn til málamyndabónorðs þegar hún kemst í klandur.
MÁLAMYNDAHJÓNABAND TIL BJARGAR?
Í myndinni Bónorðið leikur hún kanadíska konu, sem er yfirmaður hjá bandarísku fyrirtæki. Hún er um það bil að missa vinnuna þegar í ljós kemur að hún hefur ekki atvinnuleyfi. Hún bjargar sér í snatri með því að neyða ungan undirmann sinn til að samþykkja málamyndahjónaband. Og þá hefjast vandræðin fyrir alvöru …
Ryan Reynolds fer með hlutverk unga mannsins og þykja þau Bullock ná góðum samleik í þessari gamanmynd sem spáð er góðri aðsókn fram á sumar.
Til að sjá heimasíðuna SMELLIR ÞÚ HÉR
Til að sjá nektarsenuna SMELLIR þÚ HÉR
HEILLAST AF TÖKUMANNI HJÁ CNN
Hin gamanmyndin með Söndru Bullock heitir All About Steve og verður frumsýnd í júní. Þar leikur leikur hún snjallan krossgátufræðing sem verður yfir sig ástfanginn að myndatökumanni sjónvarpsstöðvarinnar CNN (Thomas Haden Church) eftir aðeins eitt stefnumót. Eltir hún manninn á röndum til að sannfæra hann um ást sína á honum.
Church sást síðast á hvíta tjaldinu í kvikmyndinni Smart People og þar á undan sem sem Sandmaðurinn í Spider Man 3. Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Sideways. Í myndinni fer líka Bradley Cooper með stórt hlutverk.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.