Sjáðu vandaða heimasíðu myndarinnar með því að SMELLA HÉR
Á öðrum stað HÉR í Samúel er sagt frá auglýsingu Peta sem NBC neitaði að birta í auglýsingahléi útsendingar frá ameríska fótboltanum, SuperBowl, þeirrar sjónvarpsútsendingar sem nær jafnan metáhorfi vestra. Hins vegar var annari auglýsingu tekið fagnandi, enda líkleg til að draga enn fleiri að sjón- varpstækjunum en aðeins aðdáendur SuperBowl. Auglýsingin var nefnilega send út í þrívídd og var reiknað með að um 100 milljónir Bandaríkjamana hafi orðið sér úti um þrvíddargleraugu til að geta notið þeirra 90 sekúndna sem sýning auglýsingarinnar varði.
DreamWorks var þarna á ferðinni með auglýsingu fyrir nýja teiknimynd sem frumsýnd verður í lok marsmánaðar. Skrímsi gegn geimverum heitir myndin og hefur verið hátt í fimm ár í framleiðslu.
Beitt var fullkomnari tækni við gerð hennar en áður hefur þekkst og byggði Dream- Works sérstaklega yfir kvikmyndagerðarfólkið til að sinna verkinu. Færustu fagmenn á sviði teiknimynda unnu að gerð myndarinnar, þeir hinir sömu og gerðu m.a. mynd- irnar Shreck og Kung Fu Panda.
DREIFÐU GLERAUGUNUM UM ÖLL BANDARÍKIN
DreamWorks lét framleiða 125 milljónir 3D-gleraugna og dreifði þeim ókeypis í liðinni viku í nýlenduvöruverslanir um öll Bandaríkin með aðstoð Pepsi til að sem flestir fengju notið auglýsingamínútunnar. Gleraugun munu svo koma aftur að notum í kvöld, mánudagskvöld, en þá verður grínmyndin Chuck send út í þrívídd.
Brotið var blað í sögu sjónvarpsútsendinga frá boltaleikjum í Bandaríkjunum með sýningu þessarar auglýsingar í þrívídd. Við þá, sem ekki höfðu orðið sér úti um 3D- gleraugu í tæka tíð til að njóta auglýsingarinnar, sögðu þeir hjá DreamWorks: „Eftir þrjá bjóra lítur auglýsingin út eins og allt annað sem þú horfir á.”
SEGJAST HAFA ÚTRÝMT HVERS KONAR LITADRAUGUM
Monster vs. Aliens verður sýnd í 1.500 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum 27. mars. Hefur ný tegund gleraugna verið framleidd fyrir sýningarnar til að kvikmyndahúsa- gestir fái notið myndarinnar fullkomlega. Nýja tæknin við gerð hennar á nefnilega að fyrirbyggja hvers kyns litadrauga sem fyrri tækni var ekki allskostar laus við.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.