SLUMDOG SIGURSTRANGLEGUST
Flestir virðast hallast að því að Slumdog Millioner hreppi verðlaunin sem besta myndin, en líklegustu karlarnir í aðalhlutverki eru taldir vera þeir Mickey Rourke fyrir hlutverk útbrunnins glímukappa í Wrestler og Sean Penn fyrir hlutverk homma í myndinni Harvey Milk.
KATE WINSLET EÐA MERYL STREEP?
Kate Winslet er talin líklegust til að hljóta verðlaunin í kvennaflokki fyrir túlkun sína á hinni þýsku Hönnu Schimtz, sem hefur fært henni nokkra verðlaunagripina á öðrum verðlaunahátíðum. Það væri þá helst að Meryl Streep þyki veita henni einhverja samkeppni fyrir Doubt, en hún hlaut verðlaun Screen Actors Guild fyrir leik sinn í myndinni.
Á SJÖTTA ÞÚSUND MEÐ ATKVÆÐISRÉTT
Óskarsverðlaunin, sem hafa verið veitt árlega frá 1929, eru veitt af Bandarísku kvik- myndaakademíunni (Academy of Motion Picture Arts and Sciences), samtökum fólks sem starfar við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum og er aðild að þeim einungis veitt í heiðursskyni. Kosningarétt við val á Óskarsverðlaunahöfum hafa þeir einir sem eru meðlimir í akademíunni, en þeir eru orðnir vel á sjötta þúsundið.
Allt um Óskarsverðlaunin fyrr og síðar á heimasíðu Oscars: SMELLA HÉR
Aðgengilegt yfirlit yfir helstu tilnefningar og önnur kvikmyndaverðaun HÉR
Sjáðu líka umfjöllun um The Reader og Kate Winslet HÉR
Sjáðu líka skrif Samúels um Benjamin Button og Changeling HÉR
Áhugavert viðtal við Heath Ledger um hlutverk Jókersins í Batman HÉR
Bíósíða Samúels með umsögnum, heimasíðum myndanna og miðasölu HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.