SMELLTU Á NÖFN KVIMYNDANNA TIL AÐ SJÁ ÚRDRÆTTI ÚR ÞEIM
Þeim skötuhjúum Angelinu Jolie og Brad Pitt voru bæði tilnefnd til bresku Óskarsverðlaunanna, hinna eftir- sóknarverðu Orange British Academy Film Awards, sem áður báru nafnið Bafta verðlaunin. Verðlaunahátíðin fór fram í Konunglegu óperunni í London sunnudaginn 8. febrúar. Það er skemmst frá því að segja, að hvorugt þerra fór heim með Bafta-grímu. En þá er bara að bíða og sjá hvort þeim gangi betur á Óskarshátíðinni 22. febrúar, en þar eru þau bæði tilnefnd til verðlauna fyrir aðalhutverk.
Angelina Jolie er tilnefnd til verðlauna sem besta kvikmyndal eikkonan í hlutverki sínu í mynd Clint Eastwood, Changeling, en Pitt er tilnefndur fyrir a eth;alhlutverkið í The Curious Case of Benjamin Button. ( Vídeó neðst á síðunni.)
HVERNIG ÞYKIR YKKUR PITT ELDAST YNGJAST?
Brad Pitt var raunar tilnefndur til tveggja Bafta-verðlauna, í hinu tilvikinu fyrir besta frammistöðu í aukahlutverki í gamanmynd þeirra Choen bræðra Burn After ReadingHvernig þykir ykkur Brad Pitt eldast ef myndin hér fyrir til hægri skildi nú gefa rétta mynd af því? Eða, á maður ekki öllu heldur að segja yngjast? Það er jú þannig sem það gengur fyrir sig í myndinni um Benjamin Button. Hann kemur úr móðurkviði sem krumpað gamalmenni, en yngist svo með á runum. Með aðal kvenhlutverkið fer Cate Blanchett.
Í jólavikunni halaði myndin inn næst mestu tekjurnar í Bandaríkjunum. Kvikmyndin, sem skákaði myndinni með Brad Pitt, er með fyrrverandi eiginkonu hans, Jennifer Aniston, í aðalhlutverki. Ber hún nafnið Marley & Me.
GAMANMYND UM HUNDALÍF SLÆR MET Í INNKOMU
Marley & Me er gerð eftir samnefndri metsölubók John Grogan's og leikstýrt af David Frankel, hinum sama og leikstýrði gamanmyndinni Te Devil Wears Prada.
Myndin segir frjá hjónakornunum Grogan (Owen Wilson) og Jenny (Jennifer Aniston) sem verður það á að að kaupa óskaplega krúttlegan Labrador hvolp, sem svo verður að 100 punda fyrirferðarmiklu og illviðráðanlegu ferlíki. En þetta taugaveiklaði skaðvaldur verður þeim svo hjartfólginn að þau mega ekki til þess hugsa að losa sig við hann þó svo að þeim hafi fæðst þrjú börn sem stafar bráð hætta af kvikindinu eins og raunar öllu og öllum sem það kemst í tæri við ...
Á frumsýningardeginum 26. desember aflaði Marley & Me 14,8 milljóna dollara, sem mun vera hæsta innkoma kvikmyndar á einum degi í kvikmyndasögunni.
MYND SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF
Changeling , sem er 29. mynd Clint Eastwood og þykir með hans allra bestu afrekum. Morgun einn árið 1928 kveður Christine Collins (Angelina Jolie), verkakona og einstæð móðir, níu ára son sinn Walter og heldur til vinnu. Þegar hún kemur aftur heim er sonurinn horfinn. Collins leitar að syni sínum mánuðum saman og er óvægin gagnvart lögreglunni sem henni finnst ekki sinna leitinni sem skildi. Lögreglan fær að lokum nóg af móðurinni og færir henni flækings- dreng sem hún segir vera son hennar.
Collins sér strax að um leikaraskap er að ræða hjá lögreglunni til að losna við hana og skilar drengnum daginn eftir. Þessi afstaða hennar hleypir illu blóði í lögregluna og gerir það að verkum að Collins er látin sæta geðrannsókn og í framhaldi send til vistar á geðveikrahæli. Mikið drama sem heldur áhorfandanum í spennu allan sýningartímann. Síðan hverfur það ekki svo auðveldlega úr minni, að kvikmyndin skuli vera byggð á sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað í Los Angeles.
Hér fyrir neðan er kynningarvídeó fyrir myndina um Benjamin Button.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.