ÞÓR S. CARLSSON SKRIFAR UM DVD-MYNDIR
Leikstjórn: Roman Polanski
Leikarar: Roman Polanski, Isabelle Adjani, Melvyn Douglas, Jo Van Fleet
The Tenant ( Leigjandinn) er þriðja myndin í þríleik Roman Polanskis þar sem nýjir leigjendur hníga hægt og sígandi inn í heim geðveikinnar. Hinar myndirnar eru; Repulsion og Rosemary’s Baby. Myndin skartar sjálfum leikstjóranum í aðalhut- verkinu og þrátt fyrir misjafnar skoðanir hvað það val varðar þá er ég á því að hann standi sig með prýði.
Roman Polanski sjálfur fer með hlutverk Trelkovsky sem flytur inn í íbúðarblokk í París. Hann kemst fljótt að því að fyrri leigjandinn, ung kona, framdi sjálfsmorð, Trelkovsky telur sér trú um að hinir íbúarnir í blokkinni hafi drifið hana til þess og fljótt verður hann sannfærður um að þau óski honum sömu örlaga. Atburðarrásin í kjölfar er frábær sýn inn í huga augljóslega veiks manns og fylgist maður með Trelkovsky byrgja sinn inní í sinni eigin geðveiki.
SVIPAR ÓNEITANLEGA TIL HANDBRAGÐS HITCHCOCK'S
Við sjáum myndina út frá sjónarhorni Trelkovsky eingöngu, þannig að framvinda myndarinnar sekkur dýpra og dýpra ofan í huga þessa geðveika manns og ómögulegt er að átta sig á því hvað sé í raun hugarórar og hvað sé að gerast í raun og veru. Persónulega finnst mér þetta gefa myndinni allan þann blæ sem hún státar af og gerir hana þeim mun meira ógnvekjandi á hátt sem svipar óneitanlega til Alfreds Hitchcock. Byrjunarsena myndarinnar og mörg skot í gegnum myndina minna einnig óneitanlega á mynd Hitchcocks Rear Window.
TVÍMÆLALAUST EIN ÁHUGAVERÐASTA MYND POLANSKIS
Mynd sem þessi þarf ákveðið fágað stílbragð til að ganga sem best upp og var það í höndum myndatökumannsins Sven Nykvist sem tekst þar frábærlega upp. Hann nær þessum fyrrnefnda Hitchcock-brag snilldarlega og er mjög gaman að fylgjast með því hvernig hann og Polanski leika sér með skugga og notkun spegla sem þeir þræða inn í flæði myndarinnar.
Þetta er tvímælalaust ein áhugaverðasta mynd Polanskis til þessa. Frábær endir á þessum sálfræði/geðveikis þríleik hans.
Aðrar áhugaverðar myndir eftir sama leikstjóra:
Chinatown - ‘74
The Pianist – ‘02
Rosemary’s Baby – ‘68
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.