ÞÓR S. CARLSSON SKRIFAR UM KVIKMYNDIR
Leikstjórn: Fritz Lang
Leikarar: Peter Lorre, Ellen Widmann, Inge Landgut, Otto Wernicke og Theodor Loos
Það má með sanni segja að Fritz Lang leikstjóri hafi verið langt á undan sinni samtíð í bæði framkvæmd og hugsun hvað kvikmyndagerð varðar er hann gerði kvikmyndina M árið 1931.
M er ein magnaðasta mynd sem fyrirfinnst og er það að stórum hluta aðalleikara myndarinnar, Peter Lorre, að þakka. Lorre leikur geðveikan barnamorðingja sem heldur borginni Düsseldorf í heljargreipum. Börn að leik syngja um mann sem kemur og drepur þau ef þau hegða sér illa, mæður eru hræddar um börnin sín og sífellt fleiri börn virðast hverfa sporlaust.
GLÆPAMENN Í KAPP VIÐ LÖGREGLUNA Í LEIT AÐ MORÐINGJA
Bæði lögreglan og glæpamenn borgarinnar eru ráðþrota sökum þessa þar sem aukin löggæsla í borginni gerir glæpamönnunum erfiðara fyrir. Þeir ákveða þvi að verða fyrri til en lögreglan í að handsama þennan brjálaða morðingja og upphefst heljarinnar leit beggja hliða að morðingjanum.
Fritz Lang sannar snilli sína í þessari mynd með því hvernig hann kemur henni fyrir sjónir áhorfandans. Aldrei sér maður karakter Lorres meiða barn eða leggja á það hendur, heldur er það túlkun leikaranna sem segir söguna á markverðan hátt. Einnig er lokasena myndarinnar meistaralega vel gerð þar sem morðinginn er látinn koma fram frá mannúðlegu sjónarhorni sem hafði eflaust aldrei verið gert á slíkan hátt áður.
ÞÖGNIN ROFIN
M er ein fyrsta myndin sem kemur út með hljóði í Þýskalandi árið 1931 og skrifar Fritz hana ásamt konu sinni Theu Von Harbou.
Þegar hljóðið kom fyrst til sögunnar voru flestar myndir stútfullar af hljóði, ef svo má að orði komast, því þá vildu leikstórar auðvitað nýta sér þessa nýju undraverðu tækni. Lang notaði það hinsvegar sparlega og það varð mun raunverulegra fyrir vikið, gaf myndinni ákveðin brag sem ýtti henni ljósár á undan öðrum myndum.
ÓTRÚLEG KVIKMYND
Myndin er meistaralega tekin og er í raun ekkert hægt út á hana að setja. Hreint út sagt ótrúleg mynd sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Fyrir áhugasama er fólki bent á Criterion útgáfu myndrinnar á DVD. Þar er á ferðinni besta mögulega útgáfan af myndinni eins og staðan er í dag.
Aðrar áhugaverðar myndir eftir sama leistjóra:
Metropolis – 1927
The Testament of Dr. Mabuse – 1933
The Big Heat - 1953
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.