Leikstjórn: Jim Jarmusch
Leikarar: Johnny Depp, Gary Farmer, Lance Henriksen, Michael Wincott, Iggy Pop, Billy Bob Thornton, Crispin Glover.
William Blake (Johnny Depp) er á leið sinni í smábæinn Machine, í þeirri trú að þar biði hans vinna. Hann kemst fljótt að öðru við komu sína þangað og lendir í atburðarrás sem veldur því að hann verður manni að bana og er sjálfur skotinn og særður á flótta sínum úr bænum.
Indjáninn Nobody, sem leikinn er af Gary Farmer, kemur honum til bjargar. Á vegi þeirra verða margir frabærir og eftirminnilegir karakterar, þ.á.m. Iggy Pop sem úrkynjaður klæðskiptingur og Lance Henriksen sem þögul en siðblind mannæta. Lögreglan er á eftir William Blake og hann er á síðustu sporunum við dauðans dyr.
Nobody vekur sífellt upp spurningar í formi indíánavisku sem virðist ýja að því að William Blake sé nú þegar látinn. Allt magnast þetta svo og vindur upp á sig á seinustu mínutum
Þessi svarthvíta mynd, í leikstjórn Jim Jarmusch, er dáleiðandi og spilar þar tónlist Neil Young stóran þátt í uppbyggingu og andrúmslofti hennar. Þetta er eflaust ein af persónulegri myndum Jarmusch og svo sannarlega ekki fyrir alla. Ég hvet þó alla sem telja sig kvikmyndaáhugamenn að láta þessa ekki fram hjá sér fara.
Áhugasömum er bent á stikluna úr myndinni hér fyrir neðan. Hún segir allt sem segja þarf.
Áhugaverðar myndir eftir sama leikstjóra:
Coffe & Cigarettes
Down by Law
Ghost Dog: The Way of the Samurai
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.