Ofantaldar myndir skörtuðu allar skærum stjörnum sem allar hækkuðu á stjörnu- himninum fyrir leik sinn í myndunum. En það var samt gamla brýnið John Wayne sem hreppti Óskarinn fyrir bestan leik í aðalhlutverki árið 1969, hlutverk kúreka (hvað annað) í myndinni True Grit. Annararr tveggja kvikmynda sem hann lék í það árið og var þetta eini Óskarinn sem hann vann til um ævina.
BESTA KVIKMYND ÁRSINS
Midnight Cowboy fékk Óskarinn sem besta mynd ársins John Schlesinger hlaut Óskar fyrir leikstjórnina. Hinar myndirnar sem tilnefndar voru til aðal verðlaunanna voru Butch Cassidy and the Sundance Kid, Anne of the Thousand Days, Hello, Dolly! og Z.
Það segir nokkuð um ágæti myndarinnar Midnight Cowboy að báðir aðalleikararnir skildu vera tilnefndir til Óskarsins fyrir leik í myndinni. Það voru þeir Dustin Hoffman og Jon Voight. Aðrir sem hlutu tilnefningu voru Richard Burton (Anne of the Thousand Days) og Peter O'Toole (Goodbye, Mr. Chips).
ÞEIR SKJÓTA EIGINKONUR, GERA ÞEIR ÞAÐ EKKI?
Besta leikkonan í aðalhlutverki var hins vegar Maggie Smith (The Prime of Miss Jean Brodie), en sú leikkona sem hlaut Óskar fyrir bestan leik í aukahlutverki var síunga gelgjan Goldie Hawn (Cactus Flower). Hvorugt hlutverkið markaði sérlega djúp spor í kvikmyndassöguna, en það gerði hins vegar leikur Jane Fonda í mynd Sidney Pollack's They Shoot Horses, Don't They? Fonda var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni, en hampaði ekki Óskarnum í það slkiptið. Það gerði hins vegar einn móttleikara hennar í myndinni, Gig Young, sem þótti besti karlinn í aukahlutverki 1969. Fór hann með hlutverk stjórnanda danskeppninnar. Þegar efni kvikmyndarinnar er haft í huga er óneitanlega enn tragískara að rifja það upp, að leikarinn skuli nokkrum árum síðar hafa skotið eiginkonu sína til bana og framið að því búnu sj álfsmorð.
VESTRAÁRIÐ 1969
Nokkuð athyglisvert hve vestrar hafa átt upp á pallborðið um þetta leiti en auk myndanna True Grit, Butch Cassidy og Midnight Cowboy voru myndirnar The Wild Bunch og Paint Your Wagon tilnefndar til Óskarsverðlauna í hinum ýmsu verðlaunaflokkum. Sú fyrrnefnda var ofbeldisfull hasarmynd frá hendi Sam Peckinpah. Í aðalhlutverkum voru ekki minni menn en William Holden, Ernest Borgnine og Robert Ryan.
Síðarnefnda myndin var bráðskemmtileg söngvamynd, þar sem Lee Marvin átti slíkan stórleik í hlutverki forfallinar fyllibyttu að mótleikari hans, Clint Eastwood, féll hér um bil í skuggann. Það gleymir enginn sem heyrt hefur þegar Lee Marvin raular á röltinu lagið I Was Born Under a Wondering Star .
GRÍPANDI TÓNLIST TIL GÓÐS
Grípandi tónlist skiptir greinilega miklu máli þegar tryggja skal kvikmynd athygli og sess í sögunni. Hver man t.d. ekki eftir laginu Everybody's Talking sem Harry Nilson söng í Midnight Cowboy?
Lagið sem hlaut Óskarsverðlaunin 1969 sömdu þeir Burt Bacharch og Hal David fyrir Butch Cassidy and the Sundance Kid. Í aðalhlutverkum í myndinni eru þeir Paul Newman og Robert Redford, en lagið er sungið af BJ Thomas og heitir Raindrops Keeps Falling on my Head. Hér fyrir neðan má heyra lagið hljóma undir trailer úr myndinni, en viljir þú heyra BJ syngja lagið á tónleikum SMELLIR ÞÚ HÉR . Lagið færði myndinni tvenn Óskarsverðlaun og höfundunum stórauknar vinsældir er það tók að hljóma mánuðum saman í útvarpsstöðvum, en það var fyrsta lag þeirra tll að seljast í meira en milljón eintökum.
Önnur mynd vakti gríðarlega athygli árið 1969, það var kvikmyndin Hello Dolly í leikstjórn Gene Kelly. Þar sungu þau Barbra Streisand og Louis Armstrong titillagið saman. Gat ekki klikkað. Tveir Óskarar þar. HÉR er önnur upptaka með laginu vinsæla í flutningi Louis Armstrong og stórhljómsveitar hans.
DÚNDURTÓNLIST í EASY RIDER
Lagið Born To Be Wild með Steppenwolf er lika ódauðlegt, en það hljómar í kvik- myndinni Easy Rider á meðan töffararnir Peter Fonda og Dennis Hopper þeysa yfir þver Bandaríkin á mótorfákum sínum. Í myndinni Easy Rider má einnig heyra lög með The Band og Crosby, Stills, & Nash. Einnig komu Bob Dylan og Byrds við sögu þegar tónlist var unnin fyrir myndina.
Fonda var framleiðandi myndarinnar og Hopper leikstjóri. Í myndinni leikur líka Jack Nicholson. Fer hann með hlutverk lögfræðings sem bjargar mótorhjóla- töffurunum úr fangelsi og fær að launum námskeið í marijuana-reykingum. Ekki hlutu Fonda eða Hopper tilnefningar fyrir leik sinn í myndinni, en Jack Nicholson fékk tilnefningu fyrir bestan leik í aukahlutverki. Þess má geta að Jimi Hendrix komst í ham eftir að hafa horft á kvikmyndina og samdi undir áhrifum frá henni lagið Ezy Ryder .
FLEIRI KVIKMYNDIR FRÁ 1969
Að lokum má minna á nokkrar myndir til viðbótar frá sama ári. Ekki allt stórmyndir en í lagi að láta þeirra getið hér í lokin. Þar er fyrsta að telja myndina The Great Escape með Steve McQueen í aðalhlutverki, þá myndina Alice's Restaurant með söngvar- anum Arlo Guthrie í aðalhlutverki. Að sjálfsögðu söng hann titillagið. HÉR er upptaka þar sem söngvarinn syngur lagið á tónleikum all mörgum árum eftir að myndin var gerð.
Árið 1969 var myndin Sweet Charity líka frumsýnd, en þar fór Shirley McLaine með aðalhlutverkið. Mynd Woody Allen, Take the Money and Run, var frumsýnd og sömuleiðis þrjár kvikmyndir með Elvis Presley. Rachel Welsh var í nýrri mynd, sem og Dean Martin. Og þetta ár var Alfred Hitchcock að senda frá sér mynd og James Bond-mynd ársins hét On Her Majesty's Secret Service. Þar fór George Lazenby með hlutverk spæjarans.
Og þá er bara eftir að smella á gluggann hér fyrir neðan og rifja upp Óskarsverðlaunalag ársins 1969, Raindrop Keeps Falling on my Head.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.